Nú fer sólin hækkandi á lofti og margir kylfingar byrjaðir að huga að golfsumrinu framundan og hvernig æfingum skal háttað fyrir komandi átök við þann litla hvíta. Á ég að fara að æfa betur heldur en ég hef gert hingað til? Langar mig til þess að verða betri, eða verð ég nokkurntíma betri, en ég er núna? Á ég að fara til golfkennara? Eða á ég bara að halda áfam að spila og gera áfram sömu vitleysurnar og ég gerði á síðasta ári?
Margir kylfingar eru ekki í aðstöðu til að fara til golfkennara, eða eiga erfitt með að mæta til kennara af hvaða ástæðum sem er. Einn snilldarmöguleikinn er að taka upp vídeó af sveiflunni með hjálp félga þíns, eða nota þrífót og senda til golfkennaranna á fixyourgame.com.
Svona einfalt er þetta:
1. Taktu upp vídeóið af sveiflunni, púttstrokunni, eða öðru því sem þú hefur áhuga á að laga í golfinu hjá þér. Þú getur notað hvaða stafræna vídeóupptökuvél sem er, jafnvel síma eins og iphone, Blackberrie eða nýjustu símana sem hafa Android stýrikerfi.
2. Búðu til þinn til aðgang (account) og fylltu út þær upplýsingar sem farið er fram á þar og settu við þær athugasemdir frá þér sem þú vilt bæta með vídeóinu sem þú sendir. Að því loknu greiðir þú fyrir tímann eða tímana. Einn tími kostar aðeins $19.95, en hagkvæmast er að kaupa 5 tíma í einu og greiða $49.95 fyrir þá, eða $10 fyrir hvern tíma.
3. Kennarar fixyourgame.com fara yfir vídeóið þitt og benda þér á hvað má betur fara, setja vídeóið þitt síðan inn á þitt svæði, (innan 48 klst frá því þú settir það inn) með skýrum leiðbeiningum um hvernig þú getur lagað sveifluna, nú eða þá annað sem um ræðir. Þú færð tölvupóst þegar vídeóið þitt er klárt og komið inná þitt svæði.
Þú getur farið inn á fixyourgame.com og skoðað hvernig þetta er gert. Sá sem þetta skrifar sendi honum myndband og það er komið tilbaka og þið getið skoðað þetta þarna:
FixYourGame.com
Username: igolf.is
Password: igolf
Gangi ykkur vel.